GH ráðgjöf · Gústaf Helgi
Gæðastjórnun og umbætur
sem styðja farsælan rekstur
GH ráðgjöf hjálpar fyrirtækjum að hámarka skilvirkni gæðakerfa, skýra ábyrgð og innleiða umbætur sem festast í rekstrinum.
Praktísk vinna sem verður hluti af rekstrinum til framtíðar.
Yfir 25 ára reynsla sem leiðtogi í gæðastjórnun, þjálfun, umbótum og breytingum.
Sérþekking á hættumati, HACCP, BRCGS, IFS og ISO 9001.
Gagnadrifin ákvarðanataka - Virk þátttaka starfsfólks - Stöðugar umbætur - Virði fyrir viðskiptavini .
Hafa sambandHvað færðu í samstarfinu?
Reyndur sérfræðingur þegar þörf er á
Þú færð yfir 25 ára reynslu inn í reksturinn án ráðningarferlis eða fulls stöðugildis. Samstarfið mótast af þínum þörfum, allt frá afmörkuðu stöðumati yfir í reglulegan stuðning og umbótavinnu.
Skýr byrjun
Við byrjum á stöðumati og forgangsröðum því sem skilar mestum árangri strax.
Vinna með teyminu
Lausnirnar eru mótaðar með stjórnendum og starfsfólki sem þekkir reksturinn.
Tengir gæði og rekstur
Starfsemin og reksturinn eru í forgrunni, studd með gæðastarfi.
Sveigjanleg samvinna
Eitt verkefni, reglulegt aðhald eða faglegur stuðningur yfir lengra tímabil.
Þegar eitthvað stoppar
Þekkir þú þetta?
Mörg fyrirtæki hafa markmið, verklag og gæðakerfi sem hafa staðist úttekt en upplifa samt að hlutir séu óskýrir og flækjustigið hátt. Stjórnendur og lykilfólk finnur oft fyrir fjarlægð gagnvart gæðakerfinu, ekki vegna skorts á reglum, heldur vegna þess að of mikið er af verklagsreglum og skráningum sem hægja á flæðinu. Of lítið er af upplýsingum sem skila raunverulegu virði inn í reksturinn. Röng nálgun og rangar áherslur.
Algengt er að stórnendur nýti ekki gögn úr gæðakerfinu til setja marmið og marka stefnu. Frávik koma ekki í ljós fyrr en þau eru orðin vandamál. Með réttri nálgun og réttu ferli geta stjórnendur nýtt gögn til að stýra rekstrinum, forgangsraða verkefnum og taka upplýstar ákvarðanir.
GH ráðgjöf kemur með þekkingu og reynslu til að innleiða rétta nálgun á gæðastjórnun, einfalda gæðaeftirlitið, auka sýnileika gæðakerfisins og innleiða skýra ábyrgð og eignarhald á ferlum hjálpar fyrirtækjum að fara úr „við verðum“ yfir í „við viljum“ hugarfar.
Hafa sambandÁbyrgð er óskýr
Erfitt að segja til um hverjir eiga hvað milli hlutverka eða deilda.
Gæðamál sitja á of fáum
Þegar ein eða tvær manneskjur bera alla byrðina verður rekstur gæðakerfisins brothættur.
Verklag lifir ekki í framkvæmd
Reglur og ferlar eru til staðar en þeir fylgja ekki daglegri starfseminni.
Sömu vandamál koma aftur
Frávik eru leyst í hvert skipti en rótarorsökin er aldrei greind.
Umbætur festast ekki
Verkefni fara af stað með góðum hug en ná ekki að verða hluti af daglegum rekstri.
Gögnin ekki nýtt
Skráningar eru gerðar en úrvinnsluna vantar. Upplýsingar úr gæðakerfinu nýtast ekki í daglegum rekstri og stjórnendur missa af gögnum sem gætu stýrt betri ákvörðunum.
Þjónusta
Þjónustuleiðir GH ráðgjafar
Hér að neðan eru nokkrar þjónustuleiðir GH ráðgjafar. Góð byrjun er að greina stöðuna og forgangsraða verkefnum. Hættumat sem og jákvæð áhrif á rekstur er leiðarljós forgangsröðunar verkefna og umbóta.
GH ráðgjöf býður líka upp á stuðning við starfandi gæðastjóra. Slíkur stuðningur er til dæmis í formi afleysingar, stuðningur og innkoma yfir álagspunkta, eða í formi faglegrar ráðgjafar, leiðsagnar, stuðnings og eftirfylgni yfir ákveðið tímabil.
GH ráðgjöf er í samstarfi við öfluga aðila sem bjóðar lausnir fyrir rafrænar skráningar og birtingu raungagna í gegnum lifandi mælaborð og á sviði þrifa og djúphreinsunar á vinnsluumhverfi bæði varðandi ráðgjöf og uppsetningu á búnaði. Hafið samband fyrir nánari upplýsingar.
Greining
Stöðumat og forgangsröðun
Hentar fyrirtækjum sem vilja fá skýra mynd af stöðunni áður en ráðist er í breytingar.
- Greining á verklagi, ábyrgð og innri framkvæmd
- Mat á því hvort kerfi og verklag styðji daglega starfsemi
- Skýr umbótaáætlun sem teymið getur unnið eftir
- Finna styrkleika starfseminnar og nýta þá áfram
Ráðgjöf
Uppbygging og umbótavinna
Hentar fyrirtækjum sem vilja meiri festu, skýrari verkaskiptingu og umbætur sem ná að festa sig í sessi.
- Skilgreina hlutverk, ábyrgð og eigendur lykilferla
- Einföldun á verkferlum og óþarfa flækjustig tekin út
- Uppbygging á eftirfylgd og aðhaldi í daglegum rekstri
- Stuðningur við frávikavinnu og umbætur
Samstarf
Handleiðsla og stuðningur
Hentar fyrirtækjum sem vilja faglegan stuðning og aðhald yfir ákveðið tímabil — án þess að ráða inn fullt stöðugildi.
- Reglulegur stuðningur við stjórnendur eða gæðateymi
- Aðstoð við forgangsröðun, næstu skref og framkvæmd
- Fagleg handleiðsla við úrlausn verkefna og áskorana
- Úrvinnsla og kynning gagna fyrir stjórnendur sem grunnur að stefnumótun og markmiðasetningu
Afmörkuð þjónusta
Innri úttekt á gæðakerfinu
Innri úttekt er krafa í BRC, IFS og ISO 9001. Hún hentar sem reglulegt heilsufarstékk á rekstri gæðakerfisins eða sem undirbúningur fyrir vottunarúttekt til að finna frávikin áður en úttektaraðilinn gerir það.
Úttektin er framkvæmd óháð þeim sem byggði kerfið upp.
- Skjalahlutinn — verklagsreglur og skráningar bornar saman við kröfur staðalsins
- Framleiðsluhlutinn — úttekt á gólfi þar sem verklag og raunframkvæmd eru borin saman
- Frávikaskýrsla — frávik og ábendingum forgangsraðað eftir áhættu
- Eftirfylgnifundur — farið yfir niðurstöður með stjórnendum og gæðateymi
Um GH ráðgjöf
Reynsla sem tengir saman gæði, rekstur og framkvæmd
GH ráðgjöf byggir á yfir 25 ára reynslu Gústafs Helga af gæðastjórnun, rekstri, umbótum, breytingum og umhverfismálum. Hann hefur starfað í matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu, orkugeiranum, við rannsóknir og kennslu og í eigin rekstri.
Reynslan í framkvæmd
Gústaf hefur hannað, innleitt og rekið stjórnkerfi af öllum stærðum frá afmörkuðum kerfum fyrir minni fyrirtæki yfir í flókin stjórnkerfi í alþjóðlegum rekstri og opinberum stofnunum. Hann hefur unnið með BRC, IFS, HACCP og stjórnkerfi byggð á ISO-stöðlum, auk áhættustýringar, frávikastjórnunar, umbótastarfs og gagnadrifinnar ákvarðanatöku, yfir allan líftíma kerfanna: greiningu, hönnun, innleiðingu, þjálfun, rekstur og eftirfylgd.
Hann hefur leitt vottunarferli, umbótaverkefni, innleiðingu stafrænna lausna og skipulagðar breytingar. Öll fyrirtæki sem hafa farið í gegnum vottunarferli undir hans leiðsögn hafa náð vottun í fyrstu úttekt.
Alþjóðleg reynsla
Gústaf hefur áratuga reynslu af ráðgjöf, innleiðingu og þróun stjórnkerfa hjá fyrirtækjum á Norðurlöndum og víðar í Evrópu, Norður-Ameríku, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Unnið þar við hönnun gæðakerfa, innleiðingu rafrænna skráningarkerfa, þjálfun starfsfólks og undirbúning fyrir alþjóðlegar vottanir. GH ráðgjöf nýtir þá þekkingu til að velja lausnir sem hafa reynst í framkvæmd og laga þær að stærð, þroska og þörfum íslenskra fyrirtækja.
Umhverfismál og auðlindanýting
Gústaf er með viðbótardiplóma í umhverfis- og auðlindafræðum og hefur innleitt og rekið Svansvottun hjá opinberri stofnun. Áherslan er á að gera umhverfismál að virkum hluta af stjórnun, markmiðasetningu og umbótum ekki aðeins að formlegri skráningu.
Rekstur, teymi og breytingar
Reynslan nær einnig til stjórnunar, rekstrar og mannauðsmála. Að leiða stórar stoðþjónustueiningar, byggja upp teymi, skipuleggja þjálfun og þróa vinnuferla í flóknu rekstrarumhverfi. Gústaf hefur unnið með fyrirtækjum af ólíkum stærðum, þvert á iðnaði og á ólíkum sviðum eins í matvælaiðnaði auk verkefna við stoðþjónustu heilbrigðisgeirans og með fyrirtækjum í tækni og þjónustu við orkugeirann.
Gæðastjórnun · Stjórnkerfi · Alþjóðleg reynsla · Rekstur · Umhverfismál · Breytingastjórnun · Þjálfun · Umbætur
Gústaf Helgi
Stofnandi GH ráðgjafar
- Menntun
- BSc og MSc í matvælafræði. Viðbótardiplóma í umhverfis- og auðlindafræðum.
- Þekking og færni
- BRCGS úttektar þekking. IFS innleiðing. BSI Training Academy- ISO 9001 implementation. Stefnumótun, áætlanir, stöðugar umbætur, breytingastjórnun.
- Reynsla
- Yfir 25 ár í matvælaiðnaði, heilbrigðisþjónustu og orkugeiranum, á Íslandi og erlendis.
- Vottunarferli
- Fjölmörg farsæl innleiðingarverkefni og alþjóðlegar vottanir
Hafa samband
Ef fyrirtækið þitt stendur frammi fyrir áskorunum í gæðastjórnun, umbótum eða breytingum hafðu þá samband. Sendu línu og við tökum 30 mínútna stöðusamtal, án skuldbindingar og án kostnaðar.